Hér koma fyrstu sérvöldu molarnir úr reykvísku menningarlífi handa áskrifendum okkar. Í dag bjóðum við upp á meðmæli með sýningu á myndlistarhátíðinni Sequences og tónleikum með ekki minna en heimsfrægum fiðluleikara og frábærum píanista. Í dag lýkur einnig RIFF, alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, en á næstunni má enn njóta úrvals valinna kvikmynda af RIFF.
#EddaogGreipur
I. Sýning a) og b) í Marshallhúsinu
Eina myndlistarhátíð Reykjavíkur, Sequences, opnar á föstudag. Þungamiðja hátíðarinnar verður í Marshallhúsinu úti á Granda, þar sem tvær samtengdar sýningar, Sýning a) í Kling & Bang á þriðju hæð og Sýning b) í Nýlistasafninu á annarri hæð opna á laugardag. Þessir tveir sýningarstaðir eru einmitt tveir af ábyrgðaraðilum Sequences sem stofnuðu til hátíðarinnar árið 2006 í félagi við fleiri listamannarekin rými, sem rík hefð er fyrir á Íslandi. Sýningarstjórar Sequences að þessu sinni eru myndlistarmennirnir Ingólfur Arnarsson og Hildigunnur Birgisdóttir. Þau velta upp spurningum um upprunalegan undirtitil hátíðarinnar – list í rauntíma – real time art festival – og kljúfa raun-tíma í sundur og skoða hvort hugtak um sig. Út frá þessum hugmyndum leggja þau til sínar hugmyndir og safaríkan hóp listamanna sem sýna valin eldri verk eða gera ný verk. Að auki buðu Ingólfur og Hildigunnur fjórum einstaklingum úr ólíkum áttum að skrifa hugleiðingu út frá grunnhugmynd sinni. Í eigin skrifum um hátíðina segja þau:
Sýningagestir bæta síðan við sinni sýn og upplifun. Þetta er opinn tilgátuviðburður um tíma okkar og stað í tilverunni.
Guðbjörg R. Jóhannesdóttir er heimspekingur og ein þeirra sem boðið var til textaskrifa, en Guðbjörg vinnur nú í félagi við fleiri að stóru rannsóknarverkefni um líkamlega gagnrýna hugsun. Hér má heyra pistil sem hún flutti á RÚV í fyrra og viðkemur fegurð, skynvísi, upplifun og innlifun. Ágætis veganesti inn í hversdaginn.
Fyrir þá sem eru veikir fyrir góðum kökum, er kjörið að koma við á La Primavera á jarðhæð Marshallhússins og fá sér bakaða ítalska ostaköku og skoða um leið verkin sem þar prýða veggi, en það eru teikningar heiðurslistamanns Sequences sem er Kristinn Guðbrandur Harðarson, listamaður sem vert er að kanna. Kristinn hefur á starfsævi sinni unnið að fjölbreyttum verkum, einskonar ljóðrænum athugunum á sínu nánasta umhverfi og ýmsum brotum sem í daglega lífinu koma honum fyrir hugskotssjónir. Verkin útfærir hann í ýmsa miðla, svo sem teikningu, skúlptúr, texta, veggmálverk, teiknimyndir og gjörninga, já og útsaum.
Teikning, Kristinn Guðbrandur Harðarson, Krít, kol, 14,7 x 21 cm, 1986
Þessi níunda útgáfa Sequences er aðgengileg fyrir lærða og leikmenn í myndlist, á öllum aldri. Því má svo bæta við að almennt aðgengi í Marshallhúsinu er til fyrirmyndar. Frítt er inn á sýningarnar eins og gjarnan er í listamannareknu sýningarrýmin, en sýningarstaðir taka á móti frjálsum framlögum.
Marshallhúsið, Grandagarður 20.
Opnun laugardaginn 12. október kl. 17-20. Þangað eru allir velkomnir.
Sýningarnar í Marshallhúsinu eru opnar fram í miðjan nóvember.
II. Joshua og Alessio í Hörpu
Sunnudagskvöldið 20. október fara fram í Eldborg í Hörpu spennandi tónleikar. Á stóra sviðinu verða tveir hágæða tónlistarmenn; Joshua Bell fiðluleikari og píanóleikarinn Alessio Bax. Það er alls ekki oft sem tónleikar af þessu tagi með tveimur hljóðfæraleikurum eru í boði í Eldborg og án efa minnistæð kvöldstund í uppsiglingu. Þeir félagar hafa spilað lengi saman og á tónleikunum stilla þeir saman strengi áður en þeir leggja í tónleikaferð um Bandaríkin.
Joshua Bell er einn fremsti fiðluleikari dagsins í dag og því um einstakt tækifæri að ræða og ekki skemmir píanistinn fyrir en Alessio Bax er eftirsóttur listamaður og hefur komið fram með yfir 100 hljómsveitum.
Báðir hafa þeir leikið á Íslandi áður. Joshua Bell lék með Academy of St. Martin in the Fields-hljómsveitinni á tónleikum á sama stað 2017 og sumarið 2011 var Alessio Bax einn aðalgesta tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið á Ísafirði. Það er skemmtileg tilviljun að við þau tækifæri léku þeir báðir verk eftir argentínska tónskáldið Astor Piazzolla. Hér er hugljúfur tangó frá tónleikum Bax í Hömrum á Ísafirði þar sem hann lék fjórhent á píanónið með eiginkonu sinni Lucille Chung. RÚV tók upp:
Á dagskrá tónleikanna 20. október eru fimm verk eftir fjögur tónskáld; fyrir fiðlu og píanó og einleiksfiðlu. Það er gaman að geta þess að sónata Césars Francks í A Dúr sem hljómar á tónleikunum var brúðkaupsgjöf til Eugène Ysaÿe sem á einmitt tvö verkanna á efnisskránni.
Eldborg, Hörpu
Sunnudaginn 20. október kl. 20.
III. Það besta frá RIFF
Í dag lýkur 16. alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík – RIFF. Hátíðin hefur staðið frá því 26. september og á vel sóttri dagskránni var fjöldi mynda alls staðar að úr heiminum sýndur. Tveir helstu flokkar hátíðarinnar, Vitranir og Fyrir opnu hafi telja myndir eftir unga kvikmyndagerðarmenn og myndir sem hafa vakið athygli á kvikmyndahátíðum heimsins. Aðalverðlaunin RIFF, Gyllta lundann, hlaut myndin Munaðarleysingjaheimilið (The Orphanage) eftir Shahrbanoo Sadat sem Katja Adomeit framleiddi.
Nokkrar myndir hátíðarinnar verða áfram í sýningu í Bíó Paradís næstu daga. Tvær þeirra bendum við sérstaklega á hér. Heimildamyndin For Sama fjallar um sýn Waad al-Kateab á heimaborg sína Aleppo í Sýrlandi. Yfir margra ára tímabil fylgist hún með þróun mála á þessum hörmungartímum en á sama tíma verður hún ástfangin og eignast sitt fyrsta barn.
Athygli vakti í ár að í fyrsta sinn keppti íslensk mynd til aðalverðlauna RIFF. Það er myndin Síðasta haustið eftir Yrsu Roca Fanberg. Myndin gerist í Árneshreppi á Ströndum en á bænum Krossnesi hefur fjárbúskapur verið stundaður kynslóð fram af kynslóð í hundruð ára. Úlfar bóndi er jafn mikill hluti af landslaginu og Krossnesfjallið sjálft. Myndin fangar síðasta haustið sem hann og Oddný kona hans smala fé sínu í réttir og þar með endar búskapur á Krossnesi á Ströndum. Árneshreppur hefur verið í deiglunni undanfarið vegna fyrirhugaðra og mjög umdeildra virkjunaráforma.
Bíó Paradís, Hverfisgötu 52
Edda og Greipur mæla með er fréttabréf sem inniheldur mola úr reykvísku menningarlífi sem við höfum valið af kostgæfni fyrir áskrifendur okkar. Bréfið berst passlega fyrir sunnudagskaffið aðra hverja viku.
Allar ábendingar og athugasemdir eru velkomnar. Þeim má koma til skila með því að svara þessum pósti.